Við siglum senn á vit þeirra ævintýra sem fylgja annalokum. Sumir eru búnir að átta sig á því að þeir eru komnir á bólakaf aðrir eru í afneitun og eiga eftir að uppgötvað það og svo enn aðrir sem... veit ekki; hvernig eru sumir? –á góðu floti?
Ég alla vegana var að gera uppgötvun. Ég er búin að leggja nokkra kúrsa í einelti á meðan ég hef dekrað við aðra. Kúrsinn sem hefur fengið mesta dekrið, er ekki vegna þess að hann er áhugaverðastur... heldur vegna þess að kennarinn er svo anskoti myndarlegur! Kúrsinn sem hefur orðið fyrir einu mesta eineltinu er: Heimspekileg Forspjallavísindi. Enda er kúrsinn jafn áhugaverður og nafnið; dæmi hver fyrir sig. Ég var að svortera glósurnar mínar; allar beru konurnar, blómin og fuglarnir prýddu glósur Heimsp.... hef greinilega alveg verið með hugan við alla fyrirlestrana sem ég hef drullast til að mæta í..
Best að hífa upp um sig brækurnar og fara að læra í hausinn sinn...