Komin heim í kotið mitt og Sigurósar; home sweet home.
Skólarnir eru báðir byrjaðir, er geggjað vesenisbarn; í tveimur skólum, og í háskólanum þá er ég að blanda saman tveimur greinum þannig að þetta var algjört púsluspil.. en púsluspilið tókst og ég er bara spennt fyrir vetrinum; enda verður nóg að gera.
Ég komst inn í Óperukórinn. Varð svaka stolt yfir því; enda þarf maður að standast áheyrnapróf til að komast aðJ það eru fult að spennandi tónleikum og viðburðum framundan.. þ.á.m New york ferð í byrjun júní mánaðar; þar sem verður troðið upp í Carnegie Hall (eða hvernig sem maður skrifar það
hehe..
Ég er byrjuð í ræktinni: það var þá að maður hóf sig í það.. ég fer alla morgna kl. 6.15 í hóptíma hjá einkaþjálfara sem lætur mann gjörsamlega púla af sér rassgatið... Verð brjáluð skutla um jólinJ -þetta er eitthvað annað en síðast þegar ég tók mig á.. þá var ég út á Ítlíu, borðaði bara einu sinni á dag, og drakk áfengi; bjór, rauðvín, hvítvín og freyðivín í hin málin.. og svo þóttist ég vera að drekka einhvern ógeðis herbilife drykk, sem ég drakk ekki af því mér fannst bjórinn betri. Hehe ég þarf kannski ekki að segja ykkur að ég grenntist ekkert að ráði; en þetta var mjög skemmtileg “megrun” . Núna er ég ekki í megrun; heldur í komastíformun, og ætla að hafa gaman af því... á annan hátt. Aðalástæðan fyrir þessarri nýju dellu er að asminn er farin að hrjá mig enn á ný; og það er ekki gott mál, upp á sönginn að gera... ég er ekki að þessu af því að ég er feitabolla.. hehe.. en einkaþjálfarinn lætur mann samt alveg heyra það ósmurt að maður sé feitabolla og ef maður ætlar ekki að vera alltaf svona feitur þá: ÞARFTU AÐ HLAUPA!! EN EKKI SKOKKA!!
Um helgina ætla ég að halda mig sem fjærst miðborgardjamminu; er að fara uppá Bláfjöll að læra á áttavita. Er að leggja í hann, í kveld (föst.) og kem til baka á sunnudaginn. Þess ferð er fyrir nýliða í Björgunarveit Kópavogs, sem ég er aðeins að sýna pínu áhuga. Ég er svaka spennnt fyrir þessari ferð því að mér líst vel á hópinn og ég held að þetta verði bara stuð.
Jæja, ég ætla að kíkja í bók og fara að græja mig á fjöll.
Kastaðu hjartanu þínu framm á við;
og hlauptu svo eftir því.
(málsháttur, mig mynnir að hann sé frá Albaníu; besti málsháttur í heimi...)